Kattavinafélagið beinir þeim tilmælum til dýravina, hvar sem er á landinu, að þeir hlúi að kisum á vergangi, nú þegar haustar að og vetur brestur á fyrr en varir.

Kisur á vergangi, hvort sem það eru villikisur, týndar eða yfirgefnar heimiliskisur, eiga erfiða tíma framundan. Þær búa við þröngan kost, svangar og þeim verður kalt og eru sumar hverjar að auki veikar, hræddar og stundum meiddar.
Bleytuveður ásamt kulda, er köttum jafnvel enn erfiðara en frostatíð og þá enn meiri hætta á veikindum meðal þeirra.

Veitum þeim skjól þar sem því verður við komið og gefum þeim í svanginn. Og ef mögulegt er reynum að ná óskilakisum og hjálpa þeim til frekari aðhlynningar. Þannig komast oft týndar kisur til síns heima og enn aðrar fá ný heimili.

Látum okkur varða dýr í neyð. Hjálpum þeim að þrauka af veturinn. Það munar flest okkar litlu, en getur skipt sköpum fyrir þeirra líðan.