Við vekjum athygli á að páskaliljur og önnur liljublóm eru eitraðar köttum. Eitrunin verður ef köttur nartar í blöðin, blómin eða frjóin. Einkenni eru meðal annars uppköst og mikilvægt er að hafa strax samband við dýralækni ef grunur leikur á að köttur hafi komist í liljur. Upplýsingar um dýralækna á bakvakt um páskana má finna á heimasíðu okkar, kattholt.is.

Við óskum kattavinum gleðilegra páska og vonum að þið hafið það sem allra best um páskana.