Hinn árlegi jólabasar Kattavinafélags Íslands verður haldinn laugardaginn 1. desember n.k. kl. 11-16 í Kattholti, Stangarhyl 2, Reykjavík.

Á boðstólum verða fallegir munir er tengjast jólunum s.s. jólakort, merkispjöld, jólapappír, jólaskraut, handverk og handunnin kerti.

Á basarnum verður til sölu dagatal ársins 2019, könnur og innkaupapokar merktir Kattholti. Einnig kisutengdur varningur s.s. kattastyttur, skartgripir og basardót.

Eins og endranær þá verðum við með girnilegar smákökur og annað bakkelsi.

Yndislegar kisur verða sýndar sem allar eiga það sameiginlegt að þrá að eignast ný og góð heimili.

Allur ágóði fer til styrktar óskilakisunum í Kattholti.

Verið hjartanlega velkomin,

Basarnefnd.