Velkomin á heimasíðu Kattholts
Opnunartími í Kattholti
Opið er alla virka daga kl. 9-15 og á laugardögum kl. 9-11. ATH. Lokað á sunnudögum. Símatímar eru alla virka daga milli kl. 9-12 í síma 567-2909.
Móttaka á hótelgestum er milli kl. 9-12 á virkum dögum og frá kl. 9-11 á laugardögum.
Kisur í heimilisleit eru sýndar eftir hádegi á virkum dögum á fyrirfram bókuðum tíma. Bókun fer fram símleiðis milli kl. 9-12 á virkum dögum eða í tölvupósti á netfanginu [email protected] Vinsamlegast athugið að kisurnar eru aðeins sýndar þeim sem ætla að taka að sér kisu á heimili. Gjald er 24.500-. fyrir kött frá Kattholti, óháð kyni og aldri.
Týnd/fundin kisa: Ef kisa finnst og talið að hún sé týnd má koma henni í Kattholt á auglýstum opnunartíma. Utan opnunartíma má hafa samband við Dýraþjónustu Reykjavíkur (DÝR) í síma 822-7820 þar sem starfsfólk getur aðstoðað.
Neyðaraðstoð
Neyðaraðstoð: Ef þú finnur sært eða slasað dýr, vinsamlegast hafðu strax samband við næstu dýralæknastofu (neyðarnúmer dýralækna utan opnunartíma er 530-4888) og lögreglu í síma 112. Ef dýrið er ekki á lífi skal hafa samband við áhaldahús viðkomandi bæjarfélags eða lögregluembætti á þeim stað sem dýrið finnst.
Í neyðartilfellum má finna símanúmer vakthafandi dýralækna á höfuðborgarsvæðinu á heimasíðu Matvælastofnunar.
Fréttir
Verzlanahöllin og Kattholt
Kæru vinir! Verzlanahöllin er með sölubás til styrktar Kattholti og óskum við nú eftir munum til að selja. Ef þið eigið eitthvað aflögu þá má fara með til þeirra eða fylla út eyðublað á kattarskránni [...]
Nýtt hótelbókunarkerfi!
Gleðilegan fullveldisdag, kæru íslendingar! Nú gefst ykkur tækifæri á að stíga skref til framtíðarinnar og bóka sjálf fyrir kisurnar á hótelið okkar! Hægt er að velja um aukna þjónustu, eins og að klippa klær og [...]
Dagatal 2024
Jólavörur til styrktar kisunum í Kattholti. Dagatal 2024 og merkimiðar fást á eftirtöldum stöðum: Kattholt, Gæludýr.is (Höfði, Grandi og Smáratorg), Dýrabær (Kringlan og Smáralind), Dýraspítalinn í Víðidal, Dýralæknastofa Reykjavíkur og Fótaaðgerðarstofa Reykjavíkur. Dagatal 2024: 2.500 [...]
Kvennaverkfall 24. október!
ATH!!!! Þriðjudaginn 24. október verður Kattholt lokað fyrir viðskiptavini vegna #kvennaverkfall 😇 Konur, sýnum samstöðu ❤️
Til upplýsinga!
Kæru vinir! Eins og glöggir kattavinir hafa tekið eftir, hefur heimasíðan ekki verið uppfærð í þó nokkurn tíma. Ekki er hægt að sjá nýkomnar kisur eða kisur í heimilisleit þar sem kerfin ná ekki að [...]
Kattholt tölvulaust í 1-2 daga!
Kæru vinir Nú er tölvan að fara í viðgerð og verðum við því tölvulaus í 1-2 daga. Við svörum ekki tölvupósti á meðan og biðjumst velvirðingar á því. Símatíminn verður þó á sínum stað, milli [...]
Aðalfundur
Þann 23. maí s.l. var haldinn aðalfundur Kattavinafélags Íslands. Þær breytingar urðu á stjórn félagsins að þær Halldóra Björk Ragnarsdóttir formaður og Halldóra Snorradóttir ritari gáfu ekki kost á sér áfram. Við þökkum þeim innilega [...]
Áskorun til kattaeigenda á varptíma!
Áskorun til kattaeigenda á varptíma Nú er vorið komið og með hækkandi hitastigi og meiri birtu fara dýr af flestum tegundum að huga að vorverkum og eru meira á ferðinni en yfir vetrartímann. Fuglar af [...]
Aðalfundur KÍS 2023
Aðalfundur Kattavinafélags Íslands verður haldinn í húsi félagsins að Stangarhyl 2, Reykjavík, þriðjudaginn 23. maí 2023 kl. 20:00. Venjuleg aðalfundarstörf Kosning til formanns Kosning til stjórnar Önnur mál, löglega fram borin Stjórn Kattavinafélags Íslands
Rúsína í heimilisleit
Rúsína, fyrrum Kattholtskisa, óskar eftir nýju heimili vegna breyttra aðstæðna hjá eiganda. Rúsína er innikisa en henni finnst gaman að fara út á svalir til að viðra sig og skoða sig um. Hún er mjög [...]
Sumarbókanir á hótel Kattholti
Fullbókað er nú á hótelinu í júlí. Við erum byrjuð að skrá á biðlista fyrir júlí og fram yfir verslunarmannahelgina. Sendið tölvupóst á [email protected]
Hótel yfir páskana.
Nú fer hver að verða síðastur að tryggja sér hótelpláss á Hótel Kattholti yfir páskana. Sendið tölvupóst á [email protected] Eins verður hægt að skrá á biðlista.
Þakkarkveðjur
Móa litla, sem fannst á Kjalarnesi, þakkar innilega allan stuðning sem henni hefur verið sýndur síðastliðna daga. Nú er hún búin í aðgerð þar sem kjálki hennar var víraður saman til þess að lagfæra kjálkabrot [...]
Einn af elstu köttum Íslands!
Beikon er talinn vera fæddur árið 2000, sem gerir hann með þeim elstu á Íslandi! Beikon fór til eiganda síns úr Kattholti árið 2003 og hefur búið þar allar götur síðan. Hann hefur lent í [...]
Hátíðarkveðjur
Kattholt óskar öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Við þökkum stuðninginn á liðnu ári, það er ómetanlegt að eiga góða að. Gleðilega hátíð öll, nær og fjær.