Það líður ekki sá dagur að einn eða fleiri kettir séu auglýstir týndir í þéttbýli eða dreifbýli.
Sennilega er vandamálið sýnilegra með aukinni notkun samfélagsmiðla, t.d. með fjölda kattasíðna á Facebook.
Ástæður þess að allir þessar kettir týnast geta verið margvíslegar, en við kattaeigendur ættum að staldra við og finna út hvort og þá hverju við gætum breytt til að koma í veg fyrir að svona margir kettir týnast að heiman.

Helstu ástæður þess að kettir hverfa eru:

  1. Nýr köttur á heimilinu. Það tekur tíma fyrir kött að aðlagast nýju fólki, heimkynnum og umhverfi. Halda skal nýjum ketti inni á heimilinu inni í lágmark 3 vikur. Sérstaklega skal passa dyr þegar gengið er um og að gluggar séu lítið opnir, þannig að þeir komist ekki út um þá.
    Sama á við ef flutt er með kött/ketti á nýjan stað.
  2. Eigendur fara að heiman snemma á morgnana, kötturinn kemst ekki inn allan daginn og hann fer á stjá í leit að hlýju og/eða mat og ratar ekki aftur heim og sest að til frambúðar að hjá fólki sem aumkar sig yfir hann.
  3. Eigandi fer í fríi og fær einhvern til að koma heim til að gefa kettinum, honum fer að leiðast og notar fyrsta tækifæri til að fara út að leita að eigendum sínum.
  4. Of margir kettir týnast þegar þeir fara í pössun á kunnugan stað og reyna að koma sér þaðan og leita að leiðinni heim. Það er mikil ábyrgð að taka að sér kött í pössun og nauðsynlegt að gæta þess sérlega vel að hann komist ekki út.
  5. Nýtt gæludýr til viðbótar á heimilið kostar vinnu og þolinmæði, ketti sem fyrir er á heimilinu getur fundist sér freklega misboðið og lætur sig stundum hverfa.
  6. Kettir þola illa óvæntan hávaða, þeim getur brugðið illa og hlaupa út í buskann og geta átt í miklum erfiðleikum með að finna aftur leiðina heim.
  7. Kettir lokast inni á ókunnugum stað. Mjög algengt er að kettir forvitnist inn um opnar dyr og svo er skyndilega lokað og þeir finna enga útgönguleið.
  8. Kettir taka sér stundum óvart far með bíl og hafna á stað langt fjarri kunnugu umhverfi aðstæðum og eiga enga möguleika á að rata til baka. Það hjálpar mjög ef fólk er vakandi fyrir því ef allt í einu birtist ókunnur köttur í nágrenninu, sem jafnvel mjálmar mikið og virðist óöruggur.
  9. Örmerki og skráning er lykilatriði að því að týndir kettir komist aftur til síns heima.
  10. Síðasta og klárlega ekki sísta ástæðan fyrir því að kettir fara á flakk er að ekki er búið að gelda fressketti og taka læður úr sambandi. Það er aldrei bent of oft á þá staðreynd, fyrir utan að það stemmir stigu við offjölgun katta.