HRINGBRAUT - TÝNDUR
Einar er ljósgulbröndóttur högni sem er týndur og hans er sárt saknað ! Hann er tíu mánaða,, ógeldur svo endilega ef þið haldið að hann sé á ferli látið mig vita !!!Hann er ómerktur. Hann á heima á Hringbraut 90 og síminn okkar er 771-7909. HJÁLP ef þið búið í vesturbæ 101 eða 107 viljiði ath. geymslur og bílskýli !!! . ÉG ER TILBÚIN AÐ BORGA FUNDARLAUN SVO ALLIR SEM BÚA Í VESTURBÆ OG MIÐBÆ VILJIÐI LÍTA Í KRINGUM YKKUR !!!
Skráð 08.02.2012.

DÝRASPÍTALINN - FUNDINN
Komið var með geldan fress síðastliðinn laugardag á Dýraspítalann í Víðidal. Þá hafði hann sést ráfandi um Jórufellið síðan á fimmtudaginn. Fressinn er svartur með hvítan blett á bringu og frekar nettur. Hann er hvorki eyrnamerktur né örmerktur og er haltur. Eigandi getur vitjað hans á Dýraspítalanum í Víðidal í síma 540-9900.
Skráð 07.02.2012.

HAFNARFJÖRÐUR - TÝNDUR
Hafið þið séð hann Simba? Hann týndist á laugardaginn 4. febrúar sl. Hann á heima á Selvogsgötu 14 í Hafnarfirði og sást þar síðast á laugardagsmorguninn. Hann er örmerktur 352206000031828 og með ól en það vantar upplýsingar á merkið. Hann er rúml. 3 ára. Ef einhver hefur séð hann, vinsamlegast hafið sambandi við Áslaugu í síma 868-8119 eða Elínu í síma 857-6302. Hans er sárt saknað.
Skráð 07.02.2012.

GRAFARVOGUR - TÝNDUR
Rebbi týndist frá heimili sínu þann 4. febrúar síðastliðinn. Hann er rúmlega tveggja ára, geldur og ómerktur. Hann er svartur og hvítur. Hann býr í Klukkurima í Grafarvogi. Hann var nýfluttur og var enn að venjast nýja heimilinu. Hans er sárt saknað. Eigandi er Gauti í síma 868-7026, heimasími 587-8222.
Skráð 07.02.2012.

HVERFISGATA - TÝNDUR
Simbi týndist frá heimili sínu að Hverfisgötu í Reykjavík þann 4. febrúar sl. Hann er gulbröndóttur og hvítur geldur högni. Örmerktur 352098100030296. Ef einhver sér hann, vinsamlegast hafið samband við Ingu í síma 864-4966.
Skráð 06.02.2012.

MÁVAHLÍÐ - TÝND
Þessi læða týndist á aðfaranótt sunnudags, hún kom til mín á laugardag á vegum Dýrahjálpar, en hún er að leita að varanlegu heimili. Hún er örmerkt, en ég eftir að fá númerið hjá fyrri eiganda. Ef Lucy skilar sér til ykkar þá skal hafa samband við mig í síma 699-4040. Hafþór
Skráð 06.02.2012.

ÁLFTANES - TÝNDUR
Brúnbröndóttur högni (svartar strípur)hvarf frá Bjarnastaðavör á Áftanesi s.l. þriðjudag. Hann er örmerktur 352206000082181 en var ólarlaus þegar hann hvarf. Hann varð fyrir bíl í haust og lærbrotnaði og það sést þegar hann hreyfir sig. Hann er nýfluttur í hverfið. Páll í síma: 849-0283.
Skráð 02.02.2012.

BREIÐHOLT - FUNDINN
Þessi litli 3 - 4 mánaða högni fannst við Eyjabakka í neðra breiðholti. Eigandi getur vitjað hans í síma 696-5776.Hrefna
Skráð 02.02.2012.

HAFNARFJÖRÐUR - TÝNDUR
Þetta er hann Skuggi (svarti kisinn á myndinni). Hann týndist í Klukkuberginu í Setbergshverfi Hafnarfjarðar 31. janúar. Hann er 8 mánaða ógeldur, ómerktur fress með enga ól. Þessi kisustrákur er innikisi, óskaplega ljúfur og blíður .. algjör kelirófa. Ég heiti Ástrós og síminn hjá mér er 773-3567
Skráð 02.02.2012.

HAFNARFJÖRÐUR - TÝNDUR
Snúður er týndur,Hann er með rauða þykka ól um hálsinn. Hann er geldur. Hann hvarf frá Blikaási í Hafnarfirði 15.janúar síðastliðinn. Við vorum að flytja svo hann hefur villst eithvað. Ef sést til hans þá er hægt að hafa samband við Guðbjörgu í síma 821-7383
Skráð 01.02.2012.

VANTAR NÝTT HEIMILI
Snúlla, Lúlla og Dúllu vantar heimili. Þrír sætir kettlingar, tveir strákar og ein stelpa komu í heiminn 1.11.11 og eru nú tilbúnir til að fara frá mömmu sinni. Allir kassavanir, mjög þrifnir og farnir að borða sjálfir. Áhugasamir geta haft samband í síma 857 5795 og 615 9161.
Skráð 31.01.2012.

SELJAHVERFI - TÝNDUR
Kötturinn minn, hann Rúfus er búinn að vera týndur í 2 vikur núna. Hann er kolsvartur og frekar mikið loðinn, hann kann ekki að mjálma og getur verið soldill klaufi. Greyið er ábyggilega útí kuldanum, stór efa að hann fatti að fara inn einhverstaðar... :) Ef þið vitið hvar hann er látið mig endilega vita í síma 615-3311 Ástrós.
Skráð 27.01.2012.

KÓPAVOGUR - TÝNDUR
Kisan okkar, Fönix, sem er 3 ára Högni týndist 19. janúar frá Ekrusmára í Kópavogi. Hann er geldur og eyrnamerktur með númerinu: 9D129 og örmerktu: 352206000066212. Hann var með Beige litaða hálsól en hann er yfirleitt fljótur að losa sig við allar ólar. Hann er svartur með hvíta línu á hökunni, hvíta skellu undir hálsinum og hvítar afturloppur. Einnig er hann með hvít veiðihár vinstra megin en alveg svört veiðihár hægra megin. Hans er sárt saknað. Síminn okkar er 845 4943.
Skráð 26.01.2012.


Eyja er þrílit læða sem týndist í október og hún er með bleika ól með nokkrum demöntum á hliðinni. Ef þið sjáið til hennar þá vinsamlegast sendið mér skilaboð netfangið mitt: kristel.yr@hotmail.com.
Skráð 24.01.2012.

LANGHOLTSVEGUR - TÝNDUR
Bruno Mars týndist aðfararnótt föstud 20.jan frá heimili sínu að Langholtsvegi 184, kj, í Reykjavík. Hann er gulbröndóttur og hvítur, 6 mánaða geldur fress, er örmerktur og með bláa glitrandi ól og merkispjald með nafni sínu og símanr eiganda. En þar sem eigandi hans er í Japan þá vil ég endilega að það sé haft samband við mig, Glugginn sem hann fer inn um er að sjálfsögðu opinn og vonum við að hann skili sér bara heim sem fyrst. Örmerki hans er: 352098100033263 Hægt er að ná í mig í s.897-7197 eða 568-2702. Jara
Skráð 23.01.2012.

VANTAR NÝTT HEIMILI
Brandur er 9 mánaða gulbröndóttur kelinn högni sem vantar nýtt heimili, hann er geldur og örmerktur. Þeir sem vilja taka hann að sér hringið í Hjördísi í síma 821-3402
Skráð 20.01.2012.

MELHAGI - TÝNDUR
Snati okkar, sem er sjö ára, svartur og hvítur högni, týndist frá Melhaga í Vesturbæ Reykjavíkur, 16. janúar. Hann er geldur, hefur aldrei lagst út og er ákaflega heimakær, þannig að þetta er mjög úr karakter.Hann er ólarlaus en eyrnamerktur með númerinu 1588. Er með sérstakan svartan blett á trýninu. Okkur langar mest að fá hann aftur, en líka að vita hvort hann er lífs eða liðinn. Vilduð þið, sem eigið bílskúra, kjallara eða geymslur, sem Snati gæti hafa lokast inn í, athuga hvort hann leynist þar. Svanhildur s. 898-9699
Skráð 19.01.2012.

VANTAR NÝTT HEIMILI
Loppa er ca 7 mánaða svört og hvít alveg yndisleg kisa. Ljúf og góð og þrifin, Hún er fædd 19 júní 2011.Hún og hundurinn minn liggja saman og kúra og svo er hún voðalega hrifin af tölvuskjám. Ef einhver vill taka hana að sér þá endilega hringið í mig í síma 892-7160 Guðborg
Skráð 18.01.2012.

FERJUVOGUR - FUNDINN
Þessi kisi er búin að vera nokkuð lengi í Ferjuvogi. Hann kom fyrst með rauða ól, og svo nokkrum dögum síðar án ólar. Hann er ekki örmerktur né eyrnamerktur. Hann er geldur og mjög blíður og góður. Ef einhver kannast við kisa hafið samband við Berglind í síma: 868-1118.
Skráð 18.01.2012.

FLYÐRUGRANDI - TÝND
Klóey er þrílit loðin læða sem tapaðist frá Flyðrugranda í Reykjavík. Hún er eyrnamerkt .Þeir sem hafa séð hana eru vinsamlega beðnir að hafa samband við Ingibjörgu í síma 821-3672 eða Ómar 821-3673 eða koma henni til okkar í Flyðrugranda 8 íbúð 2c.
Skráð 03.01.2012.

MIÐBÆR - TÝND
Doppa hefur ekki komið heim síðan kl. 14.00 á aðfangadag. Hún býr á Skúlagötu 68, en var hálfgerð flökkukisa áður en núverandi eigandi bauð henni skjól. Þess ber einnig að geta að það er ekki alveg 100% með kynið á henni Doppu (það er svolítill möguleiki á því að hún sé í raun Depill...). Allar upplýsingar vel þegnar. Kær kveðja Sigurður Þór Sími: 5510327.
Skráð 28.12.2011.

HÁALEITISBRAUT - TÝND
Svört og mjög smágerð læða hvarf af heimili sínu á Háaleitisbraut þann 24./25. des. Hún er ekki með ól en hún er örmerkt. Ef einhver kannast við lýsinguna vinsamlegast hafið samband við Sigrúnu eða Aðalstein í síma 773-4369, 848-0114
Skráð 28.12.2011.

GRAFARVOGUR - FUNDIN
Þessi fallega kisa var að mjálma fyrir utan heimili í Fannafoldi í gærkvöldi, þannig að henni var hleypt inn í bílskúr. Hún er með opinn glugga en það er ekkert fararsnið á henni. Þetta virðist vera hálfstálpaður köttur, hann er fjórlitur afskaplega fallegur og blíður með appelsínugula hálsól, en ómerktur. Líklega læða. Ef einhver kannast við hana vinsamlegast hafið samband við Sigurð í síma 587-6554/858-6440.
Skráð 28.12.2011.

KÓPAVOGUR - FUNDINN
Norskur, ungur skógarköttur fannst í Ljósalindinni í Kópavogi á Þorláksmessu. Hann er svartur með hvíta doppu á kviðnum og mjög loðinn. Krúttlegur og góður. Ef einhver kannast við hann hafið samband við Steinunni í síma 848-6963.
Skráð 27.12.2011.

MIÐBÆR - FUNDIN
Þrílit ung læða er búin að gera sig heimakomna í húsi í miðbæ Reykjavíkur síðan á sunnudag. Hún virkar eins og hún sé innikisa, var mjög hrædd úti. Ef einhver kannast við hana hafið samband við Heiðdís í síma 696-6485
Skráð 20.12.2011.

MIÐBÆR - TÝND
Ýr er þrílit loðin læða sem tapaðist frá Nýlendugötu í Reykjavík. Hún er örmerkt og var sett á hana ól áður en hún týndist. Ef einhver sér hana, látið vinsamlegast vita í síma 690-9203. Magnús.
Skráð 16.12.2011.

SNORRABRAUT - TÝNDUR
Þessi litli kettlingur er týndur, var með gula hálsól með brúnni tunnu þegar hann týndist en hef grun um að hann hafi týnt ólinni sinni. Hann er hvorki eyrna né örmerktur. Er svartur og hvítur með svartan blett á hökunni,tæplega hálfs árs, ógeldur högni, rosalega gæfur og mannblendinn. Býr á Snorrabraut. Viljiði hafa samband ef köttur líkur honum kemur til ykkar ?! Hans er sárt saknað. Hafið samband við Þórð í síma 863-3287 eða Lilju í síma 866-6469.
Skráð 13.12.2011.

SÚÐARVOGUR - TÝND
Nóra týndist frá Súðarvogi Kænuvogsmegin í Reykjavík ekki langt frá Endurvinnslunni t.d. Hún er þrílit með gula ól um hálsinn og örmerkt. Hennar er sárt saknað og því viljum við biðja nágrannanna að kíkja í bílskúra og geymslur hvort að hún hafi lokast einhversstaðar inni. Síminn hjá mér er 861-5107 og 899-6626. Sólrún.
Skráð 09.12.2011.

GRAFARVOGUR - TÝNDUR
Skuggi okkar sem er orðin 16 ára, verður 17 ára í janúari n.k. Hann er geldur, orðinn smá gráhærður. Eyrnamerktur. Hann er búinn að missa stóru tennurnar sínar. Er með gigt og getur ekki lengur stokkið upp og bara niður. Hann hvarf af heiman þann 29.11.11. frá Flétturima. Hann er ekki vanur að vera mjög lengi úti í kuldanum. Svo líklega hefur hann náð að láta vorkenna sér, af því hann er algjör kelurófa og malar eins og brjálaðingur ef einhver knúsa hann. Við værum mjög glöð að finna kallinn aftur. Magðalena í síma 659-3411 567-3411.
Skráð 09.12.2011.

SÖRLASKJÓL - TÝND
Kötturinn minn, Mist, týndist í Sörlaskjóli í vesturbæ Reykjavíkur í nóvember. Hún er fjögurra og hálfs árs, með hálsól, grá, mjög loðin og vantar aftasta hlutann á rófuna á henni. Ég vil biðja ykkur að láta mig vita ef þið fréttið af henni því hennar er sárt saknað. Dóróthea í síma 551-0641
Skráð 08.12.2011.

GRAFARVOGUR - FUNDIN
Læða(Blendings kettlingur fannst við enda Sóleyjariman að reyna fara inn í blokkir í nágrenninu og hefur sést rölta um hverfið engin hálsól, örmerki né merkt í eyra hún er mjög ljúf og góð)Ef einhver kannast við kisu er hægt að hafa samband við Aron á e-mailið : aronmani@live.com
Skráð 07.12.2011.

HAFNARFJÖRÐUR - TÝNDUR
Snúður tapaðist frá Kríuási í Hafnarfirði. Hann er á milli 5-6 kg stór og mikill. Hann var með rauða ól með símanúmeri skrifuðu á ólina en er einnig örmerktur. hann er 3 ára og MJÖG kelinn og blíður, hefur ALDREI sett út kló. örmerkið er 208224000277656. Helga 777-0313 og 426-5155.
Skráð 28.11.2011.

SELJAHVERFI - TÝNDUR
Mjálmar er 8 mánaða fress, skógarkattablanda og frekar loðinn, svartur og hvítur. Hann var með silfurlitaða ól, er líka örmerktur. Hann er innikisa sem stökk fram af svölum og er týndur .Lilja í síma 860-5989 .
Skráð 28.11.2011.

HAFNARFJÖRÐUR - TÝNDUR
Fúsi hefur ekki látið sjá sig síðan á þriðjudaginn 22 nóvember sl. Hann býr í miðbæ Hafnafjarðar, póstnúmerið 220. Hefur bláa ól um hálsinn með bjöllu, heimilisfangi og símanúmeri en hefur hugsanlega náð að losa hana af sér. Hann er alveg svartur fyrir utan örfá hvít hár á bringunni Finnandi hafi samband í síma 823-2380. Gunnar
Skráð 28.11.2011.

KARFAVOGUR - TÝND
Asía er svört og hvít læða sem býr í Karfavogi , 104 Reykjavík. Hún tapaðist þann 19. nóvember sl. Hún er fullvaxin en samt frekar lítil. Hún er örmerkt en ekki með neina ól.Vinsamlega hafið samband við Hinrik í síma 868-4903 ef hún finnst.
Skráð 26.11.2011.

HAFNARFJÖRÐUR - TÝNDUR
Hnoðri er svartur og hvítur loðinn högni og hann er örmerktur., frekar stór miðað við heimiliskött. Ef hann stendur á afturlöppunum þá ná framlappirnar upp á maga á mér (ég er 1.62)Seinast er ég sá hann þá var hann með svarta ól. Hann er vanur að láta sig hverfa meðan veður leyfir en kemur alltaf um leið og veðrið versnar. t.d. núna er snjór og ekkert bólar á honum. Hefur ekki sést síðan í ágúst. Hann svarar nafni sínu og þetta einfalda kss kss. Við búum í Hafnarfirði, Setberginu. Vona innilega að einhver viti um hann. Hef haft miklar áhyggjur af honum en alltaf vonað að hann kæmi heim þegar það kólnar. Síminn er 697-8891 og 846-2859.
Skráð 25.11.2011.

MIÐBÆR - TÝNDUR
Strákur er týndur hann hefur ekki komið heim síðan á mánudagskvöld 27 júní 2011. Hann er rúmlega 2 ára, hann er hvítur með bröndótt bak og annan afturfót og skott með kaffibrúna bletti á efri og neðri vör. Hann er örmerktur 352206000071516 og með tattú í eyra (10D187), geltur en ekki með ól. Hann á heima í 101 Reykjavík. Upplýsingar í síma 867-4957 og 552-0190
Skráð 23.11.2011.

GARÐABÆR - TÝNDUR
Simbi á heima í Smiðsbúð í Garðabæ. Hann týndist Fimmtudaginn 17 Nóvember. Simbi er bröndóttur og hvítur og hann er eyrnamerktur . Heimasíminn hjá Simba er 565-6782 gsm 857-6007 og eigandi hans er Tristan .
Skráð 21.11.2011.

BRÆÐRABORGARSTÍGUR - TÝNDUR
Skotti Pippen er gulbröndóttur og hvítur 6 mánaða högni sem tapaðist frá Bræðraborgarstíg í Reykjavík. Hann er geldur og örmerktur 352206000074124 og með svarta ól. Birkir í síma 690-2046.
Skráð 21.11.2011.

MOSFELLSBÆR - TÝNDUR
Bossi er 4 ára, bröndóttur og hvítur, stór og feitur (var feitur áður en hann tapaðist að heiman J )Hann týndist 12.nóvember sl . Hann er örmerktur : 208224000239857. Bossi á heima í Fellsási í Mosfellsbæ . Lára í síma 663-1112
Skráð 21.11.2011.

BREIÐHOLT - TÝNDUR
Hann Huginn sem er 10 ára högni svartur og hvítur loðinn hefur ekki sést heima hjá sér í eina og hálfa viku. Hann hefur farið burt í nokkra daga áður en aldrei svona lengi. Hann er mjög stór, um 7 kíló og rosalega ljúfur. Hann býr í Trönuhólum í Breiðholti, er með ól með grænu spjaldi með nafni, heimilisfangi og símanúmerum. Hann er örmerktur, 352098100011594. Ef til hans sést langar mig að biðja ykkur að hringja í síma 698-0020 eða 856-2914 Þórunn
Skráð 17.11.2011.

MOSFELLSBÆR - TÝNDUR
Cairo er grár högni með græn augu . Hann er örmerktur og með merki miða í hólk sem er fastur á ólinni hans. Ólin er svört, með nafninu hans á í semalíusteinum og fjólublárri bjöllu. Hann á heima í Barrholtinu í Mosfellsbæ og það hefur ekkert sést til hans síðan á þriðjudaginn - Miðvikudaginn í seinustu viku sem er MJÖG óvanarlegt. Sími eigenda er 777-6147 eða 690-4892. Hans er sárt saknað og ég verð alveg miður mín ef ég finn hann ekki. :( Ástrós Helga
Skráð 16.11.2011.

BREIÐHOLT - TÝND
Ella mín er týnd!! Hún fór út í neðra Breiðholti fyrir ca 5 dögum (8 nóv) og er ekki ennþá komin heim. Hún er líklega villt einhversstaðar. Hún er bröndótt/þrílit, með hvítan maga og snoppu. Hún er með beyglað eyra og hvíta sokka. Hún er að verða 3ja ára, og hún er voðalega ljúf og góð. Hún er ekki með ól en hún er örmerkt. Ef þið rekist á hana vinsamlegast hringið í 699- 5519 :)
Skráð 14.11.2011.

HAFNARFJÖRÐUR - FUNDINN
Svartur og hvítur rúmlega 1 árs fress, greinilega heimilisköttur hefur búið um sig hjá okkur að Hellisgötu í Hafnarfirði. Við erum farinn að hafa áhyggjur af honum því hann virðist leggja sig á skjólríkum stað við hús okkar yfir nóttina.Eigandi vinsamlega hafa samband við okkur Bryndís og Ingvi í síma 565-5319 og 848-2282.
Skráð 14.11.2011.

KÓPAVOGUR - TÝND
Kisan okkar, Pandóra, hefur ekki komið heim síðan á fimmtudag. Hún á heima í Asparhvarfi í Vatnsendahverfinu í Kópavogi. Hún er örmerkt, 352098100019636, og með rauða ól en ekkert merkispjald. Hún er grábröndótt, mjög loðin og stuttfætt. Hennar er sárt saknað. Símar 587-0887 og 896-3773, Guðrún.Allar upplýsingar vel þegnar, góðar og slæmar.
Skráð 11.11.2011.

HAFNARFJÖRÐUR - TÝNDUR
Loki er 2 og hálfs árs gamall högni sem tapaðist frá Setbergshverfinu í Hafnarfirði . Hann var ekki með ólina sína á sér og er ekki örmerktur.. Hann er ótrúlega heimakær og hefur aldrei látið sig hverfa áður enda er ég búin að hafa miklar áhyggjur af honum og sakna sárt.. Hann þekkist kannski líka betur vegna hægra eyrans sem er klofið vegna gamalla slagsmála.. Ég yrði mjög svo þakklát og vona ég innilega að einhver hefur jafnvel orðið var við hann... Síminn hjá mér er 445-3103 og 697 -4887 Birgitta Ýr
Skráð 09.11.2011.

HAFNARFJÖRÐUR - TÝNDUR
Glanni týndist í Brekkuási - 221 Hafnarfirði .Glanni er búin að vera týndur síðan 2 nóvember.Hann er c.a. 5 mánaða grár og hvítur ógeltur og var nýbúinn að týna ólinni sinni .Sími 617-7886 Daníel
Skráð 08.11.2011.

HOLTAGERÐI - FUNDINN
Gulbröndóttur og hvítur ungur högni með ól fannst í Holtagerði í Kópavogi. Eigandi vinsamlega hafa samband við Hildi í síma 864-8585.
Skráð 07.11.2011.

DALSEL - FUNDIN
Ómerktur köttur fannst í Dalselinu í Breiðholtinu. Hann/hún er búin að vera á flakkinu í u.þ.b. hálfan mánuð. Hann/hún er alveg ómerkt. Ef einhver saknar þessa kisa er hægt að hringja í Birgir Skúlason í síma 8206287
Skráð 06.11.2011.

GARÐABÆR - TÝND
Tinna er eins og hálfs árs svört læða sem hefur ekki komið heim síðan föstudaginn 28.okt, heimili hennar er að Línakri í Garðabænum, hún er eyrnamerkt Nr.10G175. Hennar er sárt saknað, hún er mjög gæf og hefur aldrei farið lengi í senn áður að heiman. Ef einhver hefur orðið hennar var eða veit um hana má endilega hafa samband í síma 770-3027 Hjördís.
Skráð 03.11.2011.

LAUGATEIGUR - TÝNDUR
Ikarus er bröndóttur og hvítur loðinn högni sem tapaðist frá Laugateig í Reykjavík. Hann er geldur og er með svarta og hvíta ól. Þeir sem vita um ferðir hans vinsamlega hafa samband við Berglindi í síma.868-1118
Skráð 02.11.2011.

GRAFARVOGUR - TÝND
Mía Sól fór frá heimili sínu þann 29. október 2011. Hún er kettlingafull og er komin að goti og gæti hafa komið sér fyrir einhverstaðar í hverfinu. Ef einhver verður var við Míu Sól er hann beðin um að hafa samband við Berglindi í síma 691-4929
Skráð 31.10.2011.

SELFOSS - TÝND
Skotta er 11 ára gömul læða sem á heimili á Selfossi. Hún er svört með hvíta bringu, hvítt nef, hvítar tær að framan og hvíta sokka að aftan. Hún er rosalega heimakær og er mjög fælin við ókunnuga. Hún er með bleika ól með silfurlituðum rákum í en er ekkert merkt þar sem hún týndi merkinu. Hún fer lítið úr götunni og er alltaf nálægt heimili sínu. En hún var því miður veidd í gildru í nágrenni heimilis síns þann 8.október síðastliðinn og er talið að henni hafi verið sleppt í nágrenni við Byko eða við nýju bygginguna þar fyrir aftan. Henni gæti þó hafa verið sleppt hvar sem er og hún gæti líka verið einhversstaðar á leiðinni heim ef hún er á lífi. Hún getur því sennilega verið hvar sem er á Selfoss svæðinu og í nágrenni. Hennar er ótrúlega sárt saknað og hún er orðin svo gömul svo það er ekki víst að hún spjari sig úti í mikið lengri tíma. Ef þið sjáið hana, hafið samband í Brynja (847-6674) eða Emma (868-2533), e-mail brynja-6@hotmail.com
Skráð 31.10.2011.

GARÐHÚS - FUNDINN
Þessi litli svarti og hvíti högni fannst við Garðhús í Grafarvoginum þann 27.október. Hann er líklega um 6 mánaða og alveg ómerktur. Ef einhver kannast við þennan kisa, hafið þá samband við Hrafnkel í síma 773-0300
Skráð 31.10.2011.

SANDGERÐI - TÝNDUR
Pjakkur er 9 mánaða hvítur og grár högni. Hann týndist þann 26. október frá Suðurgötu í Sandgerði. Pjakkur er ómerktur og ógeldur. Ef einhver verður hans var, hafið samband við Guðna í síma 423-7571 eða 846-6407
Skráð 28.10.2011.

GARÐABÆR - TÝNDUR
Þetta er Högni sem er týndur . Hann er sennilega bara 2ja ára þarna , verður 7 ára í sumar .Hann fannst inn í Heiðmörk þá smá kettlingur. Hann er geltur og eyrnamerktur -04G309, hann er ekki með hálsband . Eigandi Bergþóra Víðilundi í Garðabæ sími 5656916 og gsm 8617661. E- mailið er bergthora@mac.com eða í síma 490-1717
Skráð 21.10.2011.

SALAHVERFI - TÝND
Brenda týndist frá heimili sínu í Goðasölum og hefur ekki sést frá því á miðvikudagskvöldið 19.óktóber. Hún er örmerkt, 352206000080243 og með rauða hálsól með bjöllu sem er merkt með heimilisfangi og síma eigenda. Hennar er virkilega sárt saknað og allar upplýsingar vel þegnar í síma 660 1023 (Hulda) eða í síma 696 7614 (Þormar)
Skráð 21.10.2011.

BREIÐHOLT - TÝND
Hvít og bröndótt loðin læða tapaðist frá Blöndubakka í Breiðholti. Hún er örmerkt 208224000265487. Þeir sem vita um ferðir hennar eru beðnir að hafa samband við Birgir í síma 587- 2432.
Skráð 17.10.2011.

LANGHOLTSVEGUR - TÝNDUR
Tímó hvarf af heimili sínu á Langholtsvegi um kl 23 föstudagskvöldið 14 október, hann gæti hafa troðið sér inn í geymslu eða skúr í einhverri rignigarskúrinni. Hann er 2 ára gamall fress, bröndóttur með svart á bakinu .Hann er örmerktur 352097800003737 og með fjólubláa ól með rauðu merki. Guðrún í síma 823-3787 og 571- 0177.
Skráð 17.10.2011.

KÓPAVOGUR - TÝND
Hvít læða, Ljósbrá, hvarf mánudaginn þann 10.10.11 frá Álfhólsvegi, nálægt Hamraborg í Kópavogi. Hún var ómerkt. Jónína í síma 895-9110.
Skráð 13.10.2011.

ESPIGERÐI - TÝNDUR
Tyson litli kötturinn okkar er týndur. Hann er 10.mánaða og fór frá heimili sínu, Espigerði 108 RVK fyrir 2.dögum og hefur ekki sést síðan. Hann er ekki með ólina sína en er örmerktur 352098100030238. Hann er hvítur með bröndóttum flekkjum. Hann þæfir mikið, malar og finnst gott að sjúga á sér loppuna. Brynja í síma 663-3675.
Skráð 13.10.2011.

HJÁLMAR - TÝNDUR
Hann Hjálmar okkar týndist á fimmtudagsvköldið 6. október. Hann er merktur, bæði með ól og örmerki. Hann gæti hafa týnt ólinni sinni. Hjálmar er hvítur og grár 2ja ára gamall, geltur fressköttur. Hann elskar alla og allir elska hann. Klara í síma 845-0009.
Skráð 11.10.2011.

JAKASEL - FUNDIN
Þessi köttur fannst í Jakaseli. Hann hefur verið að ráfa um hverfið síðustu daga og reynt að komast inn til fólks. Kisan er alveg heillit streingrá, með grængul augu og frekar stór. Með svarta ól og gyllta bjöllu um hálsinn, en get ekki séð að hann sé eyrnamerktur. Hann er rosalega gæfur og mjög kelinn. Það hlýtur einhver að sakna kisa, enda er hann æði, en hvort kynið hann er veit ég ekki. Guðrún Helga í Síma: 869-9408
Skráð 07.10.2011.

GRAFARVOGUR - TÝND
Kisan mín týndist í Grafarvogi, hún er svört og hvít og svolítið stygg. Hún er hvorki eyrna né örmerkt en ólin var með bjöllu en ég man þó ekki litinn á ólinni. Ef þið sjáið til hennar hafið samband í 691-9118 Hildur Sunna.
Skráð 07.10.2011.

MIÐBÆR - TÝND
Katla týndist frá heimili sínu á Bergstaðastræti í 101 Reykjavík, í byrjun októbers . Hún er gul og hvítbröndótt og svolítið þybbin. Hún er ca. 6 ára gömul. Með hvíta ól, geld og örmerkt. Silja í síma: 663-5318.
Skráð 07.10.2011.

KÓPAVOGUR - TÝND
Maja er 7 mánaða, með bleika ól með bjöllu og merkimiða í álhulstri. Hún er örmerkt. Hún er svört og hvít, með hvítt strik í andliti, hvítan kvið, brjóst og fætur, bakið svart. Hún er frekar smágerð og mjög geðgóð og ljúf. Maja tapaðist frá Baugakór í Kópavogi seinnipartinn á, þriðjudaginn 4. október. Hún er mjög heimakær og fer yfirleitt ekki langt frá eða lengi en hefur einu sinni villst í burtu og fannst þá við Smáralind. Vinsamlegast hafið samband ef þið sjáið eða heyrið af Maju. Svanhvít í síma 857-8869 eða 553-3076.
Skráð 06.10.2011.

MOSFELLSBÆR - TÝNDUR
Hann Móri er um 4 ára gamall og þó að hann sé með ól á þessum myndum þá er hann alltaf fljótur að taka ólina af sér, en hann er þó eyrnamerktur. Hann er var um sig. Það sást síðast til hans fyrir viku í mosfellsbæ í holtunum eða þann 29.sept. Móri er ekki vanur að vera svona lengi í burtu, þess vegna vekur það áhyggjur hjá okkur. Ef sést til hans þá endilega hafðu samband í síma 694-9468 - Halldór Már.
Skráð 06.10.2011.

ÁLFTANES - TÝNDUR
Skellir er uþb. 4 ára fress sem týndist á Álftanesi fyrir uþb. 4 vikum (í kringum 3. september). Hann er ekki með ól en hann er eyrnamerktur. Ef fundinn vinsamlegast hafið samband við Hrefnu í síma: 773-0944 eða Guðrúnu í 891-9084.
Skráð 05.10.2011.

HAFNARFJÖRÐUR - TÝND
Nala er fimm mánaða læða grábröndótt og loðin. Lítil og nett. Hún týndist sennipartinn 3. október frá Bæjarholti 3 í Hafnarfirði. Hún er ekki örmerkt og er ekki von að vera úti. Hún er með bletti yfir augunum. Vinsamlegast hafið samband við Sigurbjörgu í síma 699-7458 ef þið verðið hennar vör.
Skráð 05.10.2011.

MIÐBÆR - FUNDINN
Þessi fallegi ungi högni fannst við Gunnarsbraut í Reykjavík. Eigandi hans getur vitjað hans í Síma 694-9698 Elsa.
Skráð 04.10.2011.

BERGSTAÐASTRÆTI - TÝND
Elskulega innilæðan mín sem er 10 mánaða stökk úr glugga á 3 hæð meðan ég var ekki heima. (Sunnudaginn 01.10.11) Hún gæti hafa meiðst við fallið. Ég bý í Bergstaðastræti. Viljið þið vera svo væn að hafa opin augu fyrir henni? Hún er ekki með ól en hún er örmerkt. Hún er þrí/fjórlit. En hún er brún/appelsínugul/svört/grá. er meira appelsínugul í framan. Lét taka hana úr sambandi fyrir tveimur vikum og er hún því rökuð á maganum. Ef þið teljið ykkur hafa séð hana, myndi ég vera rosalega þakklát ef þið gætuð haft samband við mig. Kata 847-2663.
Skráð 04.10.2011.

GRAFARVOGUR - TÝND
Mandla okkar er týnd. Hún er inniköttur og hoppaði niður af 3 hæð og hefur ekki fundist aftur. Hún hefur verið týnd frá því í byrjun september. Við búum í Engjahverfi í 112 Grafarvogi, Þeir sem vita um ferðir hennar eru beðnir að hafa samband við Hildi í síma 777-9582.
Skráð 03.10.2011.

VOGAHVERFI - FUNDIN
Þessi kisa hefur haldið sig við hús í Vogahverfi í Reykjavík í þó nokkurn tíma. Mjög gæf og kelin, höldum að þetta sé fress en erum ekki 100%. Upplýsingar í síma 846 5095 (Stefanía).
Skráð 29.09.2011.

GRINDAVÍK - TÝNDUR
Nanúk er kremaður og hvítur högni sem tapaðist frá Víkurbraut í Grindavík. Þeir sem vita um ferðir hans eru beðnir að hafa samband við cassöndru í síma 696-0629.
Skráð 28.09.2011.

GRAFARVOGUR - TÝND
Doppa er 6 mánaða læða sem hvarf frá Gullengi í Grafarvogi. Hún er afar blíð, góð og mjög forvitin og hefur hoppað af svölunum okkar af þriðju hæð seint á sunnudagskvöld. Hún gæti verið slösuð eftir hoppið. Doppa var geld síðasta miðvikudag og er því með skurð á kviðnum. Doppa er örmerkt og með nýtt tattoo í eyranu, en enga ól. Ef þið hafið séð hana eða finnið hana, viljið þið hringja í: Sigrúnu s: 896-6746 eða Gunnar s: 690-3549.
Skráð 27.09.2011.

BRÆÐRABORGARSTÍGUR - TÝND
Stjarna fór út um glugga á 2. hæð á Bræðraborgarstíg aðfaranótt sunnudagsins 25. september og hefur ekki sést síðan. Hún er svört og hvít, 1 árs, og frekar smávaxin. Hún er svört á bakinu og skottinu og hvít á maganum, bringunni, framlöppunum og snoppunni. Með hvíta sokka á afturlöppunum. Hún er ekkert merkt. Ef einhver hefur orðið hennar var er hann beðinn að hringja í s. 822-7282.
Skráð 27.09.2011.

VESTURBÆR - TÝNDUR
Valur er bröndóttur og hvítur högni sem tapaðist frá Kvisthaga í Reykjavík. Þeir sem vita hvar hann er niðurkominn vinsamlega látið vita í síma 865-6184, 578-5176, 691-3123.
Skráð 27.09.2011.

ÍSAFJÖRÐUR - TÝND
Ljósa, er 10 mánaða gömul læða, ólarlaus, sem hvarf frá heimili sínu að Hafraholti á Ísafirði þ. 18. ágúst s.l. Hún er yrjótt að lit og er hrædd við allt og alla og ekki auðvelt að ná henni, þessvegna trúum við því að hún sé enn á lífi. Hulda Bragadóttir 860-4414 og 456-3135
Skráð 23.09.2011.

MARÍUBAUGUR - FUNDINN
Svartur og hvítur 3 mánaða högni fannst við Maríubaug þann 21. sept. Ómerktur. Ef einhver kannast við þennan kisa má hann hafa samband við Daníel í síma 866-2233
Skráð 22.09.2011.

GARÐABÆR - TÝNDUR
Snúður sem er 4 mánaða grár kettlingur, ofboðslega fríður og fallegur týndist fyrir viku og er sárt saknað. Við búum í Asparlundi 10. S. 823-3912.
Skráð 19.09.2011.

DÝRASPÍTALINN VÍÐIDAL - FUNDIN
Komið var með óskilakisu á Dýraspítalann í Víðidal miðvikudaginn 14. september. Hún var búinn að ráfa í kringum hús finnandans í nokkra daga og er með ljótt nuddsár undir handarkrika. Um er að ræða brúnbröndótta unga læðu sem er ekki örmerkt. Hún var með bláa ól með fiskamyndum á og 3 misstórar bjöllur.
Skráð 15.09.2011.

KEFLAVÍK - TÝND
Snotra hvarf frá heimili sínu Faxabraut í Keflavík þann 3 september síðastliðinn..Hennar er sárt saknað og guð gefi að hún finnist..Vinsamlegast hafið öll augu og eyru opin til þess að hún eigi möguleika á endurfundum við okkur hér á Faxabrautinni..Með þökk fyrir að mega koma þessu á frammfæri. Davíð og Michael sími 865-8316.
Skráð 14.09.2011.

HAFNARFJÖRÐUR - TÝND
Þetta er mynd af týndri kisu, hún heitir Rósalind og er með fjólubláa ól, en miðinn með upplýsingum um eiganda er dottin af. Hún er að verða 10 mánaða. Hún hefur verið týnd í tæpar fjórar vikur. Hún býr að Sléttahrauni 19 í Hafnarfirði, síminn hjá mér er 694-2660 og ég heiti Stella.
Skráð 12.09.2011.

ÁRBÆR - FUNDINN
Það kom til mín gestur í gær í Skógarás , lítill fress mjálmandi fyrir utan eins og hann væri týndur, ég með mitt litla hjarta tók hann inn enda algjör kisumanneskja. Ég ætla að hengja upp auglýsingu í húsin í kring og sjá hvort einhver viðbrögð verða . Hann er ekki eyrnamerktur né með ól. Rosalega kelinn og góður. Vonandi að hann finni heimilið sitt. .Alda S: 663-5959.
Skráð 09.09.2011.

LAUFÁSVEGUR - TÝNDUR
Jakob er ca. 6 mánaða kettlingur sem hvarf frá heimili sínu að Laufásvegi í Reykjavík. Hann hefur búið hjá okkur frá í júnílok en hann var afmælisgjöf 3ja ára stúlku sem að grætur hann mjög. Hann var aðeins nýbyrjaður að kíkja út í garð en var ómerktur vegna smæðar sinnar. Við hengdum upp auglýsingar um víðan völl í miðbænum María í síma :691-7277.
Skráð 08.09.2011.

KÓPAVOGUR - TÝNDUR
Þetta er sófi, hann týndist laugardaginn 3 september frá Hraunbraut í kópavogi, hann er örmerktur og með ól. Hann er ógeldur. Ef hann finnst hringið í 844-1669. Hans er sárt saknað. Hann er mjög heimakær og hefur aldrei verið svona lengi að heiman. Dagbjört
Skráð 07.09.2011.

ÍSAFJÖRÐUR - FUNDIN
Þrílit ca 4-6 mánaða læða sem er búin að vera við Seljalandsveg og Urðarvegsbrekku á Ísafirði í tæpa viku. Eigandi er vinsamlega beðin að hafa samband við Árný í síma: 894-8263.
Skráð 06.09.2011.

TÝND - LAUGARNESHVERFI
Stella hefur ekki sést heima hjá sér síðan 26. ágúst. Hún á heima á Kirkjuteigi 31 í Reykjavík. Stella er grábröndótt með gulu ívafi, með hvítan kvið og hvíta fætur. Endinn á skottinu er svartur. Stella er ólarlaus en með tattúmerkingu í eyra. Vinsamlegast látið vita um ferðir hennar í síma 663-9977
Skráð 31.08.2011.

KJALARNES - TÝNDUR
Mikki hefur verið týndur á síðan á föstudag. Hann býr á Kjalarnesi í Jörvagrund. 5 mánaða gamall , Steingrár og mjög loðinn endilega látið vitta ef þið hafið séð hann eða vitið um hann í síma 693-8149 Ómar
Skráð 30.08.2011.

KÓPAVOGUR - FUNDIN
Þessi kisa fannst við leikskólann Smárahvamm í dag 29.ágúst. Hún er mjög blið og góð. Kisan er horuð og var þreytt og hungruð. Upplýsingar gefur Guðrún í síma 770-8560.
Skráð 30.08.2011.

HAFNARFJÖRÐUR - TÝND
Hayleigh er 3 ára smávaxin yrjótt með hvítan smekk og fætur og hún tapaðist frá Austurgötu í Hafnarfirði. Hún er eyrnamerkt 10G79 .Þeir sem hafa orðið hennar varir eru vinsamlega beðnir að hafa samband í síma 663-6624 og 691-6347 Inga. Hennar er sárt saknað.
Skráð 29.08.2011.

HAFNARFJÖRÐUR - TÝNDUR
Baltasar hvarf frá heimili sínu, Laufvangi í Hafnafirði, fyrir nokkrum dögum. Ekki alveg vitað hvenær. Hann er 3 - 4 mánaða, grábröndóttur. Ef þið sjáið til hans látið mig vita í síma 618-1577, sama hvað klukkan er! kv. Anika
Skráð 26.08.2011.

HVERAGERÐI - TÝNDUR
Hann Sjarmur minn hefur ekkert sést heima hjá sér undanfarið og ákvað ég því að auglýsa eftir honum. Hann er mjög gæfur, gulbröndóttur með hvítar hosur og hvíta bringu, hann býr í Hveragerði. Hann er örmerktur og geldur, en ólin hans hefur líklega tapast. Ef einhver hefur orðið var við hann þá vinsamlegast hafið samband í síma 847-7222. Hans er mjög sárt saknað og mér þætti vænt um að fá hann heim. e-mail er arnheidur90@gmail.com
Skráð 23.08.2011.

HVERAGERÐI - TÝNDUR
Bubbi týndist fyrir viku rétt fyrir utan Hveragerði. Bubbi er Cornish Rex köttur og vís til að fara inn einhverstaðar til að borða og leita sér hlýju. Hann er örmerktur en er ekki með ól. Hann var í pössun þegar hann týndist. Hans er sárt saknað af eigendum sínum. Fundarlaun í boði fyrir þann sem finnur hann. Ef einhver hefur séð Bubba í Ölfusi eða þar í kring i vinnsamlegast hringið í síma: 8425642 Helena .
Skráð 23.08.2011.

HAFNARFJÖRÐUR - TÝNDUR
Schweinsteiger er gulbröndóttur og hvítur 1 - 2 ára högni sem tapaðist frá Klukkubergi í Hafnarfirði. Hann er örmerktur 352097800003605. Þeir sem vita um ferðir hans vinsamlega látið vita í síma 565-5017 / 660-8554 / 565-5014. Elín. Hans er mjög sárt saknað af öllum á heimilinu.
Skráð 22.08.2011.

NJARÐVÍK - TÝNDUR
Depill týndist af nýja heimilinu sínu að Steinási í Njarðvík í dag þann 21. ágúst. Ef þú hefur orðið var/vör við hann Depill okkar endilega hafðu samband við Valgerði í s: 897-6656 eða okkur hjá Dýrahjálp í netfangið sonja@dyrahjalp.is Depill er tæplega 3ja ára fress, hvítur og grár með lítinn depil á trýninu. Hann er með rauða endurskinsól merkta Dýrahjálp Íslands.
Skráð 22.08.2011.

GARÐABÆR - TÝND
Rúmlega 9 mánaða bröndóttur og hvítur síamsblandaður högni tapaðist 18 ágúst sl frá Lyngmóum í Garðabæ. Hann er örmerktur 352098100029657. Hann er með lítið hjarta og lætur ekki ná sér auðveldlega .Þeir sem geta gefið einhverjar uppl um hann vinsamlega hringið í 862-1139 Rakel. Hans er sárt saknað.
Skráð 19.08.2011.

GRAFARVOGUR - TÝNDUR
Smjúní týndist í september árið 2010.Hann er örmerktur og eyrnamerktur = R 2025.Hann er hvítur og svartur, högni og er geldur .Hann fæddist í maí árið 2001 og er þá 10 ára.Síðast þegar við vissum var hann feitur,hann er mjög kelin og góður.Endilega látið okkur vita strax ef þið hafið verið vör við ferðir hans í síma 567-5678.það er heimasímin okkar, eða 892-2033 -Kristján eða 774-6696 -Berglind. Fannafold 179.
Skráð 18.08.2011.

VESTURBÆR - TÝND
Músla týndist frá Hringbraut í vesturbæ aðfaranótt laugardags.. hún er soldið mannfælinn og ekki merkt né örmerkt, hún bjó áður í sveit, þannig að hún er ekki vön svona mikilli umferð.. hún er hvít undir hálsinum og maganum, en ofaná er hún svona grá/svört bröndótt.. hún er 4 ára gömul læða og það er búið að taka hana úr sambandi.. Ég heiti Magnús og er í síma 659-3760.
Skráð 16.08.2011.

KELI - FUNDINN
Keli - tveggja eða þriggja ára gulbröndóttur fress með hvíta sokka. Fannst í Grafarholti 11. eða 12. ágúst og hafði Kattholt samband við upprunalegan eiganda þar sem kötturinn er örmerktur honum. Var ættleiddur í gegnum Dýrahjálp Íslands árið 2009, var á Selfossi 2010. Nýju eigendurnir vinsamlega hafa samband í síma 660 3271 - Netfang erkiengill@gmail.com.
Skráð 15.08.2011.

KÓPAVOGUR - TÝND
Freyja Smith tapaðist frá Sæbólsbraut í Kópavogi.Hún er örmerkt og hún var líka með ól, fjólubláa og dökkbleika með bleiku hjarta nafnspjaldi. Hún er ekki mannblendin svo að það er ekki auðvelt að ná henni. Þeir sem hafa orðið hennar varir vinsamlega látið vita í síma 824-4483.
Skráð 15.08.2011.

GARÐABÆR - TÝNDIR
Þrír þriggja mánaða kettlingar hurfu frá heiðarlundi 7 í garðabæ í morgun, 11. ágúst ,þeir komust út um gluggann. Þeir sem hafa orðið varir við þá vinsamlega hringið í síma 562-5777 eða 862-1482 Karl.
Skráð 12.08.2011.

HOFTEIGUR - TÝND
Viktoria hefur ekki komið heim síðan í gær hún er grá og hvít kisa og er ekki vön útikisa en fer aðeins hér um næsta nágrenni og skilar sér alltaf inn á kvöldin þegar við köllum á hana, en ekki í gær. Hún er 10 ára gömul, mjög feit og búið að taka hana úr sambandi, hún er ekki merkt og ekki með ól. Ég sendi tvær myndir með af henni. Hún tapaðist frá Hofteigi 10 í gær 8.ágúst. Vinsamlega látið mig vita ef hún skilar sér til ykkar í síma 843-9332, 864-6585 eða 847-1366, Sigga og Davíð.
Skráð 10.08.2011.

ARNARNES - TÝNDUR
Rögnvaldur er loðinn bröndóttur fress sem tapaðist af Arnarnesinu í Garðabæ þann 1. ágúst 2011. Hann er geldur, var með ól og er örmerktur. Finnandi er beðin um að hafa samband við Hörð í síma 775-6009
Skráð 05.08.2011.

SELTJARNARNES - FUNDIN
Læða með kettlinga heldur til í garði á Látraströnd á Seltjarnarnesi. Sennilega er þetta villiköttur, a.m.k. búinn að vera lengi úti og án ólar. Óvíst hvort að hún sé eyrna eða örmerkt. Ef einhver kannast við kisu er hann beðin um að hafa samband við Önnu í síma 696-1450.
Skráð 05.08.2011.

MOSFELLSBÆR - FUNDINN
Þessi kisa er búin að gera sig heimakomna til mín. Sennilega búin að vera alllengi úti því hún var mjög stygg. Ef einhver kannast við hana þá er síminn minn 6912110 eða 5576841 Dóra.
Skráð 05.08.2011.

HÓLMAGARÐUR - TÝNDUR
Sólon týndist frá heimili sínu í Hólmagarði í 108 Rvk fyrir 1-2 vikum síðan. Sólon er svartur ógeltur og ómerktur högni. Ef einhver verður hans var má hafa samband við Þórir í síma 697-5817.
Skráð 04.08.2011.

KÓPAVOGUR - TÝND
Læðan Skaði týndist frá heimili sínu í Löngubrekku í Kópavoginum fyrir tveim vikum síðan. Hún er yrjótt og var með bláa ól á sér þegar hún týndist. Andri í síma 693-0397.
Skráð 04.08.2011.

REYKJAVÍK - TÝNDUR
Kormákur hvarf frá Heiðargerði í Reykjavík þann 28. júlí 2011. Hann er 8 ára, loðinn svartur, geltur fressköttur. Líklega ómerktur. Ef einhver verður var við Kormák hann vinsamlegast beðin um að hafa samband við Heiðu í síma 897-9306
Skráð 02.08.2011.

LEIFSGATA - TÝNDUR
Dewey okkar hefur ekki látið sjá sig síðan á föstudaginn, hann er svartur og hvítur- frekar lítill og mjór ekki mikið loðinn. Vona að hann komist í leitirnar sem fyrst :( Hann hefur stækkað síðan á þessari mynd. Hann er 5 mánaða. Hann er hvorki geltur né merktur. Hægt er að ná í okkur í síma 844-9225 eða 773-5393 .Ellen og Gunna
Skráð 02.08.2011.

REYKJANESBÆR - TÝND
Nala týndist frá heimili sínu í Reykjanesbæ fyrir viku síðan. Nala er svört og hvít og loðin og er með hálft skott. Hún var með græna ól þegar hún týndist. Sigurbjörg í síma 659-5969
Skráð 27.07.2011.

KÓPAVOGUR - TÝND
Kisa týndist frá heimili sínu í Erluási í Kópavogi. Hún er bröndótt með hvíta sokka og var með gula ól á sér þegar hún fór að heiman. Kisa er örmerkt. Hún er búin að vera týnd í 3 mánuði og er sárt saknað. Eva í síma 843-0677
Skráð 27.07.2011.

HAFNARFJÖRÐUR - TÝNDUR
Kasper týndist frá heimili sínu í Hamrabyggð í Hafnarfirði þann 21. júlí sl. Kasper er gulbröndóttur loðinn skógarköttur. Hann er örmerktur og með ól, en á ólinni stendur rangt símanúmer. Ef einhver finnur Kasper, hafið samband við Gylfa í síma 845-7904
Skráð 25.07.2011.

MOSFELLSBÆR - TÝNDUR
Snati týndist frá heimili sínu í Álfholti í Mosfellsbæ. Snati er 1 árs og geltur kolsvartur högni, annars ómerktur. Ketill í síma 690-2481
Skráð 25.07.2011.

RAUÐARÁRSTÍGUR - TÝNDUR
Rambó týndist frá heimili sínu í Rauðarárstíg. Hann er svartur og hvítur geltur högni og er örmerktur. Þóra í síma 661-4704
Skráð 25.07.2011.

FAXASKJÓL - TÝNDUR
Hektor er svartur og hvítur högni sem týndist föstudaginn 15.júlí sl. Hann er stór inniköttur með brotna vígtönn. Sást síðast hlaupa út á steina við dælu í Faxaskjóli í Vesturbænum. Hektor er ekki með ól. Óskum eftir að haft sé samband í s.552-4999 ef þið hafið einhverjar upplýsingar um kisuna okkar.
Skráð 25.07.2011.

KJALARNES - TÝNDUR
Myrkvi hvarf á Kjalarnesi, líklega 12-15 júlí s.l. Hann er rúmlega ársgamall, örmerktur og geltur. Hann er mjög loðinn með rauða hálsól með bjöllu. Hann er brúnn, sumir myndu segja bröndóttur en er meira brúnn en bröndóttur. Íris s: 868-1573
Skráð 23.07.2011.

KJALARNES - TÝNDUR
Kalli kisi er týndur, hann er ca. 14 vikna og er grár og hvítur og með bláa ól. Týndist á föstudaginn á Kjalarnesinu í hverfinu. Soffía Sóley s.867-2331
Skráð 20.07.2011.

KÓPAVOGUR - TÝND
Gul 2 ára læða hefur ekki skilað sér heim síðan 1. júlí sl. Hún var með rauða ól sem var rifin í endann. Með smá kviðslit og svolítið hávær. Finnandi er beðin um að hafa samband við Gittu í síma 861-3174
Skráð 19.07.2011.

REYKJAVÍK - TÝND
Júlíus er 5 til 6 ára grár og hvítur fress sem hefur ekki skilað sér heim að Yrsufelli síðan 16. júlí 2011. Júlíus er eyrnamerktur með númerinu 4R209 og með gráa endurskinsól með tunnu sem í er merkimiði. Hann er hvítur með gráa flekki og blett á nefinu. Finnandi er beðin um að hafa samband við Rósu í síma: 551-9038 / 892-9038
Skráð 19.07.2011.

HESTAVAÐ - TÝNDUR
Silfurbröndóttur geltur högni týndist frá Hestavaði þann 15. júlí sl. Hann heitir Tumi og er örmerktur. Sárt saknað. Davíð í síma 821-1117
Skráð 19.07.2011.

KÓPAVOGUR - TÝNDUR
Bröndóttur geltur högni týndist frá Hólmaþingi í Kópavogi þann 14. júlí sl. Hann hafði verið rakaður á mestum líkamanum fyrir stuttu svo hann ætti að þekkjast vel ef hann sést einhverstaðar. Tínna í síma 869-4450 eða Trausti í síma 771-3030.Hann er örmerktur 352206000082948.
Skráð 19.07.2011.

BÁRUGATA - TÝNDUR
Ómerktur, 5 ára, grár högni með hvíta bringu og loppur. Kisi er geltur. Hann var nýfluttur frá Borgarholtsbraut í Kópavogi á Bárugötu í vesturbæ Reykjavíkur og týndist þaðan 15. júlí sl. Fundarlaun. Sími 864 0409
Skráð 19.07.2011.

KOLLAFJÖRÐUR - TÝND
Svört og hvít 10 ára læða týndist í Kollafirði. Hún er eyrnamerkt og tekin úr sambandi. Hjörtur í síma 869-8802
Skráð 18.07.2011.

GARÐABÆR - TÝNDUR
Grár og hvítur mjög gæfur högni týndist frá Kjóavöllum í Garðabæ fyrir tveim vikum síðan. Hann er geltur og með svarta hálsól. Erla í síma 862-3646
Skráð 15.07.2011.

HAFNARFJÖRÐUR - TÝND
Embla týndist frá Vörðustíg í Hafnarfirði, sunnudaginn 10. júlí. Hún er þrílit svört, hvít og brún-gul. Hún er hvít á loppunum og framan á hálsinum og er með bleika ól og örmerkt. Melkorka í síma 692-9425
Skráð 15.07.2011.

GARÐABÆR - TÝND
Skotta týndist af heimili sínu í Hagaflöt í Garðabæ. Skotta er 4-5 ára grábröndótt læða og er eyrnamerkt. Arngrímur í síma 895-0639
Skráð 14.07.2011.

GRINDAVÍK - TÝNDUR
Bröndóttur og hvítur högni týndist í Grindavík 25 júní . Hann er geltur og örmerktur. Fólk er vinsamlega beðið um að ath. í bílskúra og geymslur hjá sér. Þeir sem verða hans varir eru vinsamlega beðnir að hringja í síma 777-3421 eða 691-2183 FUNDARLAUN
Skráð 14.07.2011.

HRINGBRAUT - TÝNDUR
Hvítur högni týndist frá Hringbraut. Hann er geltur, örmerktur 208224000280535 og með ól með zebra mynstri. Sóley í síma 694-1300
Skráð 13.07.2011.

BÚÐAGERÐI - TÝNDUR
Bröndóttur og hvítur 7 mánaða högni týndist frá Búðagerði þar sem hann var í pössun. Hann er geltur og örmerktur. Guðríður í síma 869-4544.
Skráð 13.07.2011.

REYKJAVÍK - TÝNDUR
Svartur 1 árs gamall fress týndist frá Hvassaleiti þann 06.júlí sl.Hann er örmerktur og svolítið styggur. Finnandi er beðin um að hafa samband við Óskar í síma 820-1962
Skráð 08.07.2011.

REYKJANESBÆR - TÝNDUR
Sokkur er 1 árs og týndist í Innri-Njarðvík í Reykjanesbæ fyrir rúmum 2 mánuðum (maí.2011) . Hann er örmerktur, svartur með hvítan háls og hvítar loppur. Fundarlaun 10.000,-. Ef hann finnst hringið í síma 846-5149 eða 421-1132 Hans er sárt saknað!
Skráð 08.07.2011.

VESTURBÆR - TÝND
Kolrassa er týnd. Hún týndist þriðjudaginn 5. júlí sl og býr í Vesturgötu. Hún er yrjótt og er eyrnamerkt með númerinu 10D66. Kolrassa er með fjólubláa hálsól með bjöllu og tunnu. Hafið samband í síma 865-2294 ef hún finnst eða sést. Hörður
Skráð 08.07.2011.

HÁBERG - TÝNDUR
Brandur er grábröndóttur 7 mánaða gamall fress sem týndist þann 05. júlí sl. Brandur er með bláa ól, örmerktur og geltur. Finnandi er beðin um að hafa samband við Guðrúnu í síma 697-9151
Skráð 07.07.2011.

BREIÐHOLT - TÝND
Þyrla hvarf frá heimili sínu þann 05. júlí sl Hún er eins árs læða, hvít með svörtum flekkjum og svarta doppu á hökunni. Hún er ómerkt. Finnandi er beðin að hafa samband við Hrafnhildi í síma 895-5455
Skráð 06.07.2011.

ÁSVALLAGATA - TÝND
Grá læða týndist frá heimili sínu í Ásvallagötu í Reykjavík. Hún er með rauða ól, er örmerkt 208224000290940 og eyrnamerkt 11H024. Gígja í síma 695-5201
Skráð 06.07.2011.

GERÐIN - TÝNDUR
Skalli er gulbröndóttur og hvítur högni sem týndist í Gerðunum, 108 Reykjavík, um helgina og síminn er 663-6746
Skráð 05.07.2011.

SELJAHVERFI - TÝND
Rósa týndist þann 30 júní. Hún er bröndótt, hálfur skógarköttur með mjóleitt andlit og mikið skott. Hún er með ól og er merkt Rósa, Jóruseli. Sigurður í Síma: 898-9097.
Skráð 05.07.2011.

FRAMNESVEGUR - TÝNDUR
Ísidór er 1 árs hvítur högni sem tapaðist úr pössun, hann sást síðast á Framnesvegi í Reykjavík. Hann er geltur og örmerktur. Ólafur í síma 861-7310.
Skráð 05.07.2011.

BREIÐHOLT - TÝND
Ástkæra kisan okkar hún Ninja er týnd .Hún sást síðast 30. júní sl í Akraseli í Breiðholtinu þar sem hún á heima. Hún er bröndótt með hvíta bringu og hvíta snoppu, hvítar hosur og ljós í skottinu. Hún er fremur smávaxin og fíngerð. Ninja er fædd 19. nóvember 1993 fullorðin en mjög ern. Pétur og Ólöf í síma 587-3999.
Skráð 01.07.2011.

ÁRBÆR - TÝNDUR
Hann týndist í Árbænum, Rofabæ 31. Hann hefur verið inniköttur síðan ég fékk hann, í u.þ.b. eitt ár og hefur alltaf verið hjá mér þegar ég vakna og voðalega þægur og hlýðinn. Stefán í síma: 615-2410.
Skráð 30.06.2011.

MIÐBÆR - TÝNDUR
Strákur er týndur hann hefur ekki komið heim síðan á mánudagskvöld 27 júní 2011. Hann er rúmlega 2 ára, hann er hvítur með bröndótt bak og annan afturfót og skott með kaffibrúna bletti á efri og neðri vör. Hann er örmerktur 352206000071516 og með tattú í eyra (10D187), geltur en ekki með ól. Hann á heima í 101 Reykjavík. Upplýsingar í síma 8674957.
Skráð 29.06.2011.

BRYGGJUHVERFI - TÝND
Bröndótt og hvít u.þ.b. 5 mánaða læða tapaðist frá Bryggjuhverfinu í 110 Reykjavík. Hún er alveg ómerkt. Þeir sem hafa orðið hennar varir vinsamlega hringið í Kristbjörgu í Síma 772-3821.
Skráð 29.06.2011.

HAFNARFJÖRÐUR - TÝNDUR
Simbi okkar er týndur. Hann hefur ekki komið heim til sín í nokkra daga og er það mjóg ólikt honum. Hann heimtar alltaf að kúra á kvöldin með eiganda sínum á meðan verið er að lesa. Hann er er ekki vanur að fara langt frá húsinu (Álfaskeið 127) og kemur venjulega þegar eigandinn kallar á hann. Hans er sárt saknað. Hann er eyrna- (veit ekki númerið) og örmerktur (3522064061349) og við viljum biðja þá sem hafa séð hann að hringja í 897-0479 eða senda post á eddagl@hi.is.
Skráð 28.06.2011.

HAFNARFJÖRÐUR - TÝNDUR
Kisan okkar er búinn að vera týndur síðan 24 júní. Hann er bröndóttur og hvítur 2 ára högni. Kisi er voðalega feiminn, vinalegur og forvitinn köttur, honum finnst fátt skemmtilegra en að klifra um borð í bíla eða fela sig inn í kössum og pokum. Hann er örmerktur og með gráa flóaól. Hann býr á Suðurgötunni í Hafnarfirði, rétt hjá Krónunni og höfninni. Þeir sem hafa orðið hans varir eða vita um ferðir hans hringi í síma 697-4881 eða 893-0089.
Skráð 28.06.2011.

BERÞÓRUGÖTA - TÝND
Mús er týndist frá heimili sínu við Berþórugötu um hádegi á föstudaginn 23, hún er ekki vön þessu hverfi en er vanur útikisi. Hún er líkleg til að hafa troðið sér inn einhverstaðar (eins og kettir gera) Vinsamlega hafið samband í síma er 699-3699.
Skráð 27.06.2011.

HAÐARSTÍGUR - TÝNDUR
Elvis fór heiman frá sér af Haðarstíg þann 22.júní sl. og hefur ekki sést síðan. Hann er með brúna ól og nafn og símanúmer eru innan á ólinni. Hann er líka örmerktur. Við viljum biðja þá sem hafa séð hann að hringja í 867- 8609.
Skráð 24.06.2011.

HAFNARFJÖRÐUR - TÝND
Ein grá kisa m/ smá hvítt í sér, þar á meðal framloppu(sjá mynd) - Elísa og önnur röndótt kisa - Kittý týndust fyrir ca viku síðan í Hafnarfirðinum (Holtinu). Þær eru báðar eyrnamerktar og voru báðar með ólar sem gætu þó hafa týnst. Ef einhver hefur séð til þeirra endilega hafa sambandi við Pálmar: 858-8502 / 565-5258 eða palmar@samskip.is.
Skráð 24.06.2011.

HAFNARFJÖRÐUR - TÝND
Elísa og Kittý týndust fyrir ca viku síðan í Hafnarfirðinum (Holtinu). Elísa er grá kisa m/ smá hvítt í sér, en Kittý bröndótt (myndin er af Kitty) - Þær eru báðar eyrnamerktar og voru báðar með ólar sem gætu þó hafa týnst. Ef einhver hefur séð til þeirra endilega hafa sambandi við Pálmar: 858-8502 / 565-5258 eða palmar@samskip.is.
Skráð 24.06.2011.

KÓPAVOGUR TÝND
Týna er svört og hvít læða sem tapaðist frá Galtalind í Kópavogi. Hún er örmerkt 352098100023993. Þeir sem eiga heima þarna í kring eru vinsamlega beðnir að ath hvort að hún hafi lokast einhverstaðar inni, því að hún á það til að fara inn um glugga þarna í kring. Jóhann í síma 564-5912 og 695-2963.
Skráð 20.06.2011.

ÁRBÆR - TÝND - 5.000 KRÓNA FUNDARLAUN.
Hún Birta okkar er týnd - við fórum í sumarbústað og nágranninn okkar sá um að gefa henni á meðan. Birta hefur ekki sést síðan á 17 júní. Við eigum heima að Heiðarási , 110 Reykjavík. Birta er orðin 5 ára. Börnin eru búin að vera að leita að henni. Hennar er sárt saknað. Ása Gréta í síma: 869 8809 - 588 3777 - 893 0202 Maggi
Skráð 20.06.2011.

REYKJANESBÆR - TÝNDUR
Litli sæti er svartur og hvítur yndislegur högni sem týndist af einu fósturheimili Dýrahjálp Íslands sem er við Mávatjörn í Reykjanesbæ. Ef einhver hefur fundið hann eða séð til hans er sá hin sami beðin um að hafa samband í síma: 773-7768 eða dyrahjalp@dyrahjalp.is
Skráð 20.06.2011.

MOSFELLSBÆR - TÝNDUR
Grár högni tapaðist þar sem hann er í pössun í Álfholti í Mosfellbæ. Hann er örmerktur 352098100024996. Kristín í síma 697-6409.
Skráð 15.06.2011.

MOSFELLBÆR - TÝNDUR
Hann Lubbi okkar hefur ekkert skilað sér heim. Hann er með græna ól og er loðinn, en er rakaður, ógeldur, bröndóttur og hvítur. Við búum í Hjarðarlandi ofan við Álafosskvosina. Ef þið rekist á hann endilega hafið samband í síma 7736902 Erla
Skráð 14.06.2011.

BRYGGJUHVERFI - TÝNDUR
Hvíti kötturinn okkar Freyr, oftast kallaður Kisi, týndist 5.júní frá Bryggjuhverfinu þar sem hann var í pössun. Hann er örlítið mannafælinn og feiminn, en ljúfur og góður kisi. Mikið loðinn og með loðið og mikið skott. Hann er ómerktur og við erum orðin áhyggjufull. Ef þú hefur séð hann viltu láta okkur vita í síma 899 8066, Sif.
Skráð 14.06.2011.

HAFNARFJÖRÐUR - TÝND
Læðan heitir Píla og hún týndist á Fagrahvammi 1 í Hafnarfirði. Hún er hvít með svörtum doppum og er með rauða hálsól með bjöllu. Ef eitthvað fréttist af henni vinsamlegast hafið samband við mig í síma 864-9226.
Skráð 09.06.2011.

HLYNGERÐI - TÝND
Lukka hefur ekki komið heim í tvo daga, við búum í Hlyngerði, 108 Reykjavík. Hún er þrílit læða .Hún var ekki með ól eða nafnspjald en var merkt í eyra 5R440. Hlynur í síma 568-7875 / 821-3535
Skráð 09.06.2011.

HLÍÐAR - TÝND
Læðan okkar, hún Lovísa strauk að heiman síðasta föstudag 3ja júní og hefur ekki látið sjá sig síðan. Hún er 6 mánaða, hvít með bröndótta bletti á búk og smá dökkan topp í andliti ,hún er smágerð og ekki með ól. Hún strauk frá Flókagötu 57, 105 í Hlíðunum. Síminn hjá okkur: 770-8224 Friðrik eða 6917353 Nína
Skráð 09.06.2011.

GARÐABÆR - TÝND
Samba er eins árs læða sem týndist frá Bæjargili í Garðabæ 27. maí. Hún er svört með einstaka hvít hár á stangli, sérstaklega í rófunni. Hún er með hálsól, merkt með heimilisfangi og símanúmeri (ef hún er ekki búin að týna ólinni). Vinsamlegast hafið samband við Ingu í síma 863 8885 ef þið hafið einhverjar upplýsingar um afdrif hennar.
Skráð 06.06.2011.

HAFNARFJÖRÐUR - TÝNDUR
Kremi er eyrnamerktur og geldur högni, hann er kremlitaður og því auðþekkjanlegur. Hann er rúmlega 2 og 1/2 árs gamall. Hans er mjög sárt saknað. Hann á heima á Norðurvangi í Hafnarfirði. Ef einhver hefur séð hann þá er hann vinsamlega beðinn um að hafa samband í síma 699-5259 eða 565-1904.
Skráð 27.05.2011.

KEFLAVÍK - TÝNDUR
Hann fór að heiman Sunnudaginn 22 maí. þetta er 1 1/2 árs gamall högni frekar smávaxin, hann er hvítur og svartur . Hann er örmerktur og bólusettur og hefur farið í allar þær skoðanir sem er krafist. Hann á heima að Skólavegi 30 230 Keflavík. Eigandi er Einar H Aðalbjörnsson sími 861-2031 fundarlaunum er heitið fyrir þann sem kemur með hann heim.
Skráð 26.05.2011.

KÓPAVOGUR - TÝNDUR
Palli er gulbröndóttur högni tapaðist frá Lækjarsmára í Kópavogi. Hann er geltur og örmerktur 352098100029198. Hann er einnig með græna ól. Jóhanna í síma 895-7302.
Skráð 25.05.2011.

HAFNARFJÖRÐUR - TÝND
Hún skotta týndist 4 maí og hennar er sárt saknað. Hún býr í Setbergshverfi í Hafnarfirði og var ómerkt. Skotta er yrjótt, aðallega svört og brún, 5 ára gömul og mjög líklega kettlingafull . Þeir sem hafa orðið varir við Skottu endilega látið okkur vita í síma 5550216 eða í síma 8625071.
Skráð 20.05.2011.

ESKIHLÍÐ - TÝNDUR
Þetta er hann Prins sem týndist af heimili sínu í Eskihlíð aðfararnótt mánudagsins 16.maí og er sárt saknað af Þorvaldi s: 862-1184
Skráð 17.05.2011.

BREIÐHOLT - TÝND
Freyja er bröndótt loðin læða sem hvarf frá heimilinu sínu Fífuseli í Seljahverfinu. Við erum í fjölbýli (á 3. hæð) svo hún er inniköttur en er dugleg að sitja úti á svölum og horfa á fuglana. Hún er 1 árs og er ómerkt .Erna í síma: 660 -7478.
Skráð 17.05.2011.

KÓPAVOGUR - TÝNDUR
Kisan okkar týndist frá Baugakór 10 í Kópavogi. Hann er svartur högni. Hann týndist rétt eftir eurovision sem sagt 14 maí sl. Hans er sárt saknað og það eru fundarlaun í boði . Mail/póstur: Birtabjork01@hotmail.com og Birta í Síma :857 - 2884 .
Skráð 17.05.2011.

MOSFELLSBÆR - TÝNDUR
Nóel bröndóttur og hvítur högni sem er týndur og búinn að vera það í rúma viku. Hann á heima að Leirutanga í Mosfellsbæ. Hann er örmerktur og geldur og er 2 1/2 árs gamall. Margrét í síma :846-5363
Skráð 13.05.2011.

VATNSENDI - TÝND
Grábröndótt, ljúf og góð læða tapaðist frá Vatnsenda þann 10.maí hún slapp út og er þetta í fyrsta skipti sem hún fer út. Hún er um 5 mánaða og er mjög lítil. Hún hefur hvíta bjölluhálsól um hálsinn. Endilega hafa samband ef eitthver kannast við ferðir hennar. Auður í síma 820-7670.
Skráð 12.05.2011.

MOSFELLSBÆR - TÝND
Lóra er 18 mánaða Maine Coon læða sem hvarf frá heimili sínu miðvikudaginn 4. maí. Hún á heima í Barrholti 22 í Mosfellsbænum og hún er inniköttur. Hún er stór, loðin og bröndótt og eru eyru hennar einnig loðin. Lóra er örmerkt. Brynja í Síma 863-9491.
Skráð 06.05.2011.

LANGHOLTSVEGUR - TÝNDUR
Sebastían er grár og hvítur og er 1 árs gamall þó hann líti ekki beint út fyrir það í stærð. Hann býr á Langholtsveginum og hefur ekki sést í nokkra daga. Þeir sem hafa séð til hans eru beðnir að hafa samband í síma 616-2628, Íris Hildur.
Skráð 04.05.2011.

HAFNARFJÖRÐUR - TÝNDUR
Sófus er týndur en hann er svartur högni með hvíta bringu og hvíta sokka. Hann sást seinast í Bröttukinn í Hafnarfirði og er sárt saknað. Hann er með ól og merki sem stendur Kisi. Vinsamlega hringið í S: 844-5222 ef þið getið veitt ábendingar um ferðir hans.
Skráð 03.05.2011.

HAFNARFJÖRÐUR - TÝND
Lísa týndist frá Hvammabraut í Hafnarfirði þann 4. apríl. Lísa er smávaxin svört og hvít læða. Óskar í síma 772-2215.
Skráð 02.05.2011.

GRAFARVOGUR - TÝNDUR
Kisi týndist frá Grundarhúsum, Grafarvogi (heima hjá sér) um miðjan dag þriðjudag 26.apríl. Kisi er ómerktur (týndi nýlega ólinni sinni og er ekki örmerktur). Hann er grár og hvítur 1,5 ára gamall fress sem búið er að gelda. Mjög blíður og góður. Hefur stundum verið úti yfir nótt en er þá alltaf við hurðina um morguninn. Pálína í síma 822-7407
Skráð 02.05.2011.

GARÐABÆR - TÝND
Svört og hvít blönduð skógarlæða týndist fyrir viku frá Aratúni í Garðabæ. Síminn hjá mér er 848-2465.
Skráð 27.04.2011.

STIGAHLÍÐ - TÝND
Laufey er svört og hvít 10 mánaða læða sem tapaðist frá Stigahlíð í Reykjavík. Hún er rökuð á kvið eftir aðgerð. Hún er örmerkt og með rauða ól. Óli í síma 866-1690 og 865-1262.
Skráð 27.04.2011.

BÚSTAÐARHVERFI - TÝND
Læðan Snæfríður, ársgömul, týndist frá Hólmgarði, 108 Rvk, að kvöldi 14. apríl. Hún sást síðast á leið í norðurátt, að Hæðargarði. Finnandi vinsamlegast hafi samband í síma 699-0427.
Skráð 16.04.2011.

HAFNARFJÖRÐUR - TÝNDUR
Hann Lúkas týndist frá Burknavöllum í Hafnarfirði þann 10 apríl. Hans er sárt saknað Hann er gulbröndóttur með hvíta bringu, háfættur og með svarta díla á nefinu. Hann er merktur í hægra eyra. Stefán í Síma : 770- 0095.
Skráð 14.04.2011.

HAFNARFJÖRÐUR - TÝNDUR
Gulbröndóttur og hvítur högni, 9 mánaða gamall, ólarlaus en með tattú í eyra llG47 týndist frá heimili sínu Þrúðvangi Hafnarfirði (Norðurbærinn) þann 1. apríl síðastliðinn. Hans er sárt saknað! Aðalheiður í Síma : 865-8475.
Skráð 07.04.2011.

KÓPAVOGUR - TÝNDUR
Kasper er svartur og hvítur 1 og 1/2 árs högni sem tapaðist frá Digranesheiði í Kópavogi . Hann er mjög heimakær og ekki vanur að fara neitt. Hann er örmerktur 352206000070095. Berglind í síma 445-0118 og 869 -1419.
Skráð 06.04.2011.

FOSSVOGUR - TÝND
Mig langaði að tilkynna týnda kisu. Hún heitir Mylla, er 8 mánaða og er alveg ómerkt. Hún týndist í Fossvoginum, skilaði sér ekki heim í nótt. Hún er þrílit, mjög kelin og sleikir yfirleitt á manni nefbroddinn þegar hún er tekin upp. Hennar er sárt saknað. Síminn er 898-4979, Elísabet.
Skráð 05.04.2011.

VATNSENDI - TÝND
Hún Nico er týnd. Hún er tæplega 1 árs læða sem fór út í fyrsta skipti 3.apríl og það hefur ekkert sést til hennar eftir það. Hún er rosalega lítil í sér. Hún býr á Vatnsenda, Fannahvarfi 4. Ef þú hefur séð til hennar vinsamlega hafið samband við mig, Anna Lilja 690-5754
Skráð 05.04.2011.

FOSSAHVARF - TÝND
Kisan okkar hún Lilla er týnd. Hún fór á flakk frá heimilinu okkar í Fossahvarfi í Kópavogi 2. apríl 2011. Hún er dökkbrún/yrjótt, 7 ára gömul og mjög róleg og ljúf. Hennar helsta einkenni er að það er eins og andlitið sé tvískipt, ljósbrún vinstra megin og dökkbrún hægra megin. Þegar hún hvarf var hún með rauða endurskins ól sem búið var að skrifa á og bjöllu á ólinni. Hún er eyrnamerkt með nr. 5R255 og hún er líka örmerkt. Ef einhver finnur hana eða sér til hennar má hafa samband við Unni í s. 8690386 eða Elías í s. 7703686
Skráð 05.04.2011.

SELJAHVERFI - TÝNDUR
Stjáni okkar er týndur, við búum í Seljahverfinu, hann fór að heiman fimmtudagskvöldið 31.03 og hefur ekki skilað sér heim, hann hefur aldrei farið að heiman yfir heila nótt. Hann er svartur og hvítur, með appelsínugula ól með litlum myndum á, hann er einnig eyramerktur með númerinu 11G52. Hans er sárt saknað L Vinsamlegast ef einhver hefur orðið hans var hafið samband við Huldu í síma 864-0220.
Skráð 04.04.2011.

KÓPAVOGUR - TÝNDUR
Herkúles er grábröndóttur 3 - 4 ára högni sem tapaðist frá Meltröð í Kópavogi. Hann er geldur og eyrnamerktur 08G123. Hans er sárt saknað. Sigurbjörg í síma 690- 2019.
Skráð 25.02.2011.